|
|
07.01.2007 20:43:22 / gulla
http://laugalitla.blog.is ér
nýja bloggið mitt á MBL.
»
15.12.2006 00:28:29 / gulla
Takk fyrir góð viðbrögð við seinasta blogginu mínu.. Þið eruð
rúsínur.
Prófin eru búin og í höfn, ég er verðandi stúdína
og einkunnir koma bráðum.. jei!
Ég er að vinna hjá póstinum á fullu, svo kannski banka ég uppá
með pakka fyrir ykkur 
En þið eruð æði og frábær!
»
30.11.2006 21:58:59 / gulla

Ég er eins og þessi bekkur. Alein,
langt í burtu og horfi yfir á fjarlæg lönd og upp til Guðs.
Afhverju er ég einmana?
Mér líður undarlega þessa dagana,
eða, í raun bara í dag. Ég vaknaði hress, fór hress í
Líffræðiprófið og gekk vel í því og var ágætlega hress í dag. Svo
komst ég að því í kvöld að ég er ein. Ég er skilin útundan. Mér
finnst það ótrúlega leiðinlegt og það fær mig svo oft til að hugsa
um mig á slæman hátt. Ég á það til að kenna mér um öll heimsins
vandamál, ef þau eru ekki mér að kenna, hverjum þá?
Ég er búin að vera lifandi í þessum
heimi í 19 ár og 3 mánuði og ég hef enn ekki fundið minn stað í
honum. Ég hef flutt mikið, alveg helling, þvers og kruss, bæði til
útlanda og hér innanlands. Ég hef eignast marga vini í gegnum
ævina. Ég átti bestu vinkonu úti í Danmörku, en leiðir okkar
skildust. Svo átti ég vini á Siglufirði en leiðir skildust líka og
enn og aftur eignaðist ég bestu vinkonu í Kópavogi. Ég flutti burt
og sambandið rofnaði.
Síðan ég flutti í bæ hafnanna hef ég
í raun ekki eignast neina ,,bestu” vinkonu. Ég hef eignast góðar
vinkonur, mjög góðar, en samt tekst mér alltaf að verða
útundan.
Mig langar í bestu vinkonu, einhverja
sem ég get sagt allt, alltaf leitað til og hangið með, hlegið með
og grátið með. Vilt þú vera besta vinkona mín?
Afhverju er ég bekkur? Ég vildi ég
væri grasstrá. Öll grasstráin eru saman og haldast saman, svoleiðis
á að vera hjá mér. En ég er bara bekkur og allir hinir bekkirnir
eru langt í burtu og uppteknir af veraldlegum hlutum.
Guð er hjá mér, að sjálfsögðu, því ég
er dýrmætt barn hans og hann elskar mig óendanlega mikið. Guð er
ekki nóg fyrir mig. Það er skrítið að segja þetta, en er hægt að
lifa með Guð sem sinn eigin vin? Ég held ekki.. ég veit það ekki.
Guð hjálpar mér auðvitað og styrkir mig og ég get talað við hann og
hann getur talað við mig. En hann hefur ekki þennan mannlega
skilning. Ekki minn Guð allavega. Það er erfitt að lýsa
þessu.
Ég er einmana. Eins og
bekkurinn.
»
07.11.2006 22:56:20 / gulla
Bloggi blogg, ég er alltaf að gleyma að blogga, ég veit það. En mig
langar að byrja þetta blogg á að þakka fyrir mörg og góð comment
við seinasta bloggi  Nú er ég búin að vera að æfa með
leikfélaginu í yfir 10 vikur og loksins erum við farin að sýna. Það
var frumsýning um daginn sem gekk stórvel og önnur sýning eftir
KSS-fund sem gekk líka mjög vel. Endilega hringið í mig ef þið
viljið fá upplýsingar um næstu sýningar, ég vil endilega að þið
skellið ykkur. Skólinn gengur og gengur. Ég get enn náð símati í
Stærðfræði, Efnafræði og ég er búin að ná símati í Líffræði.. svo
ég er ágætlega kát. Svo er ekki lokapróf í sögu... svo ég þarf bara
að taka próf í Íslensku, Tölfræði og Sálfræði, ef ég ná símati í
hinu. Ég vona að ég nái því  Prófin byrja í lok nóvember og
seinasta prófið mitt er 11. des svo þetta er allt að skella á og
bráðum að verða búið. Ég er að hugsa um að vinna aftur hjá póstinum
um jólin, ég skemmti mér mjög vel síðast og þetta var svosem ekkert
mjög erfitt, var að vinna frá 13-22 og á mjög góðum launum. Fékk
eitthvað um 100.000, þó það sé að sjálfsögðu ekki nákvæmt  Vill
einhver koma með mér að vinna hjá póstinum? Keyra út jólapakka? Það
er ýkt stuð  Bráðum fer ég að segja upp á Snæland, ég nenni þessu
ekki lengur. Alltaf þegar ég kem að vinna er allt í rúst og spólur
í stöflum, sem eftir á að stimpla út, ganga frá og setja í hillur.
Og ég vinn að því að gera allt fínt, mæti svo daginn eftir og þá er
allt aftur komið í rúst. Þetta eru óásættanlegar vinnuaðstæður. Ég
var að vinna í gær, með gutta sem er 12 ára! Sonur eigandans. Er
það ekki ólöglegt? Svo er ég að útskrifast 20. des og voða gaman,
en ég er ekki alveg viss um hvað ég vilji gera eftir áramót, ég er
að hugsa um að taka kannski 2 áfanga í fjarnámi, easy peasy og
sálfræðina ef ég næ henni ekki  En hvað finnst ykkur að ég
ætti að gera? Hvar get ég unnið? Jæja, ég held ég sé búin að blaðra
alveg nóg, en vonandi finnst ykkur gaman að lesa þetta, þetta er
mjög áhugavert. P.s. Valey er komin heim og það er æði  Guð
blessi ykkur!
»
16.10.2006 16:43:36 / gulla
Ég tók þá skemmtilegu
ákvörðun í dag að skella mér heim úr skólanum, með
strætó.
Ég rölti út í strætóskýli og
eftir nokkra bið kom vagn númer 21. Ég fór inn og spurði
bílstjórann hvað kostaði. Hann svaraði “Tvohúndrúd og fimtí krúnor”
og ég sagði “Ha?”, þar sem ég skildi hann ekki alveg. Aftur sagði
hann “Tvohúndrúd og fimtí krúnor” og þá gerði ég mér grein fyrir
því að þetta var ekki íslenskur maður, heldur útlenskur að reyna að
segja “Tvöhundruð og fimmtíu krónur”. Ég borgaði, bað um skiptimiða
og fékk mér sæti. Ég tók þá ákvörðun að vera ekkert að spyrja
bílstjórann hvort hann færi niður í fjörð, því etv kunni hann
ekkert meira í íslensku heldur en að segja tvöhundruð og fimmtíu
krónur.
Þegar vagninn var kominn upp á
Holt, stöðvaði bílstjórinn hann og spurði mig hvert ég væri að
fara. Ég sagði skýrt og greinilega “FJÖRÐUR” til að hann myndi nú
örugglega skilja mig. Hann svaraði: “Ég fara í smá pásu, bara tí
mínútór” og ég sætti mig bara við það og lét fara betur um
mig.
Meðan ég sat þarna, ein í
vagninum, heyrði ég samtal í talstöðinni. Það var útlenskur maður
að segja “Mayday.... (og eitthvað meira sem ég skildi ekki)”
Íslenskur maður svaraði honum í talstöðinni og sagði “Hvar ertu?”
sá útlenski endurtók sig og sá íslenski líka. Samtalið endaði með
því að íslendingurinn sagði honum að bíða þar sem hann væri og
einhver myndi koma og skipta við hann um vagn.
Bílstjórinn kom aftur inn í
vagninn og við lögðum af stað niður í Fjörð. Þegar þangað var komið
steig ég úr vagninum og í þann næsta. Hjarta mitt tók kipp. Ég
gladdist er ég heyrði “Góðan daginn” á góðu, gömlu íslenskunni og
mér var boðið að gjöra svo vel að ganga inn, ég þakkaði fyrir mig
og settist ánægð niður.
Eftir þessa stuttu ferð mína,
sem varaði 1 klst og 15 min (ég er 5 min að keyra sjálf heim úr
skólanum), fór ég að velta fyrir mér hvernig það sé að vera
íslendingur og starfa innan STRÆTÓ BS. Það hlýtur að vera erfitt.
Þú ert kannski búinn að vinna þarna í mörg ár og allt í einu eru
komnir fleiri útlenskir menn en íslenskir. Ég tók eftir því að það
var aðeins 1 íslenskur bílstjóri sem fór frá Firði meðan ég var
þar, allir hinir voru útlendingar.
Er þetta þróun sem við viljum?
Ég er ekkert á móti útlendingum og að sjálfsögðu eigum við að
hjálpa fólki sem verður að flýja sitt heimaland, en þetta minnti
mig dálítið á South Park þátt sem ég sá um daginn, þar sem fólk úr
framtíðinni tók yfir öll störf, því þau unnu fyrir mun minni
laun.
Mig langar að geta farið í
strætó, verslað í Bónus, talað við ræstinn í skólanum mínum (ef ég
hef týnt einhverju) og margt fleira, án þess að þurfa að fara á
tungumálanámskeið fyrst. Ég bý á Íslandi og þar tala ég
Íslensku.
»
14.10.2006 22:55:52 / gulla
Góða
kvöldið, góðir hálsar.
Í dag er laugardagur og allt í fjöri. Ég er búin að læra doldið í
dag og svo verslaði ég afmælisgjöf fyrir litla bróður minn,
Sturlu.
Í kvöld var svo KSS-fundur, eins og alltaf á Laugardagskvöldum. Og
ég átti að vera með vitnisburð...
Ég var búin að undirbúa mig og punkta hjá mér og var tilbúin að
miðla reynslunni. Lofgjörðin hófst og sungin voru tvö lög, það
seinna var "forgive me" sem hefur mikla þýðingu fyrir mig. Ég lagði
svo af stað upp á svið, með fiðrildi í maganum, gerði mig tilbúna
og kynnti mig.
Kynningin mín, ásamt byrjuninni á vitnisburðinum mínum var
svohljóðandi: "Hæ, ég heiti Guðlaug, ha? er ég að tala í vitlausan
mic? Nú, á ég að tosa þennan nær?" svo byrjaði vitnisburðurinn. "Ég
var beðin að vera með vitnisburð hérna í kvöld og ég er smá
stressuð.. Ég ákvað að svara spurningunni "Hvað hefur Guð gert
fyrir mig" Ég byrjaði í 10.bekk í 10. bekk í KSS og.. úff.. þetta
er alveg að koma.. ég byrjaði í kss.. ég get þetta ekki" Og svo
hljóp ég út. Grátandi.
En slysin gerast og stressið gerist líka. Stressið bara bugaði
mig.. ég veit ekki alveg afhverju.. en ég held að það hafi að hluta
til verið afþví að þarna stóð ég alein og fullt af fólki fyrir
framan mig og ég var að fara að segja þeim öllum frá minni
persónulegu reynslu. En til að koma mínu á framfæri ætla ég að
birta vitnisburðinn minn hér, þó það sé að sjálfsögðu alls ekki
jafn gott og að ég myndi segja hann með röddu 
Hvað hefur Guð gert fyrir mig?
Ég byrjaði í KSS í 10. bekk eftir skólakynningu í skólanum mínum,
Öldutúnsskóla. Mér fannst þessi félagsskapur spennandi og hélt að
hann myndi henta mér ágætlega.
Í grunnskóla átti ég fáa vini, ég var lögð í einelti þegar ég var
nýflutt til Íslands, en þó ekki jafn mikið einelti og margir hafa
lent í. Mér fannst ég útundan og mér leið ekki ýkja vel.
Í KSS kynntist ég fullt af frábærum krökkum, og eignaðist mína
bestu vini. Og það sem meira er, ég kynntist Guði.
Samband mitt við Guð styrktist á þessum tíma og ég kynntist honum
betur og betur. En ég velti því þó fyrir mér afhverju ég fékk ekki
að upplifa Guð á þann stórkostlega hátt sem sumir fá. Afhverju
birtist hann mér ekki? Afhverju hitt og afhverju þetta?
Það er ekki svo langt síðan að ég áttaði mig á því að það þarf
ekkert kraftaverk að eiga sér stað... Guð sýnir sig líka í litlu
hlutunum.
Sem dæmi má nefna að ég var að sækja Hauk í vinnuna fyrir ekki svo
löngu síðan og ég er svolítið myrkfælin og ég sá engan bíl eða mann
neinsstaðar úti og var því svolítið hrædd. Ég ákvað að tala við
Jesú og ég sagði við hann "Jesú, sýndu mér að ég sé ekki ein í
heiminum, ég er hrædd, hjálpaðu mér". Svo beygði ég handan við
hornið og þar voru allt í einu fullt af bílum og mikið líf.
Þetta sýndi mér að Guð sýnir sig líka í litlu hlutunum, margt smátt
gerir eitt stórt eins og sagt er. 
Ég valdi svo vers til að birta með vitnisburðinum: Markús 5:36
,,Jesús sagði: ,,Óttast ekki, trú þú aðeins"".
Við þurfum ekki að vera hrædd, Jesú er með okkur og það eina sem
við þurfum að gera er að trúa.
Jæja, þessi langloka er búin hjá mér og takk fyrir að lesa, ef þið
nenntuð því 
Þið eruð alger æði og Jesús er alltaf með ykkur.
P.s. ef það vill svo til að einhver á ,,Orð Guðs til þín úr
Biblíunni" sem hann vill endilega losna við, þá skal ég sko taka
við því 
Love you! Over and out!
»
11.10.2006 22:25:36 / gulla
Meira, meira blogg, meira blogg, meira fjörefni

Hæ
sætu og velkomin að lesa bloggið mitt!
Takk fyrir öll kommentin frá ykkur, þau eru mér mikils virði.
Og í þetta skiptið þurfið þið ekki að lesa svona hátt, því það er í
lagi með space-takkann 
Annars segi ég bara ágætt, skólinn gengur vel og félagslífið
líka. Við fengum miðannarmat áðan og ég stóð mig bara býsna vel og
er ánægð með frammistöðuna, hingað til. Svo er bara að sjá hvað
setur.
Ég
held að ég verði að hætta að vinna á virkum dögum, því ég er að
drukkna í skólanum, en vonandi lægir bráðum. Úff Púff og Súkkulaði.
Umm.. Mig langar í súkkulaði.
Leikfélagið gengur vel, þó ég sé búin að æfa lítið, þá skemmti
ég mér vel og hef að sjálfsögðu gaman að þessu öllu
saman.
Kss – best í heimi! Félagið mitt. Allt gengur svo ótrúlega vel
það, enda stjórnin og starfandi nefndir, tæknimenn og tónlistarfólk
að standa sig vel. Takk fyrir skólamótið það var æði.
Ég
er búin að eiga afmæli og fékk fullt af spennandi gjöfum, ótrúlega
gaman og takk fyrir að gera afmælið mitt æði, taki til sín vinir og
fjölskylda 
Hér heima er að sjálfsögðu líka allt gott að frétta, mömmu
gengur ágætlega í Háskólanum, fyrir þá sem ekki vissu er hún í HA
að læra leikskólakennarann, og pabbi skemmtir sér konunglega í
vinnunni og allir hressir. Valey er enn í Ástralíu, en hún kemur
heim 30 og ég held jafnvel að mig hlakki dálítið til.
Familían ætlar að skella sér í sumarbústað 26. október, því
mamma á afmæli þá helgi og við ætlum að eyða smá gæðatíma saman.
Spurning hvort maður skelli sér kannski í bæinn á stelpufund, en ég
er ekki búin að ákveða það enn.
Mig langaði líka bara að minna ykkur á hvað þið eigið góða
vini. Aldrei gleyma því. Fólkið sem maður getur alltaf leitað til
eru vinir manns og eru alltaf til staðar fyrir mann.
Takk fyrir að vera vinir mínir og hjálpa mér á erfiðum stundum

Kveðjur frá Medion, Gulla. 
»
15.09.2006 10:56:16 / gulla
Hæ!
Þá er loksins komið að bloggi, ég veit að ég hef ekki verið ýkja
dugleg að blogga, en þið eruð ekki ýkja dugleg að kommenta.
Í dag er 15 september, sem þýðir að ég á afmæli eftir 15 daga,
og þá verður sko ýktmergjað partý!
Þess má geta að tölvan sem ég er í er með biluðum space takka,
og þess vegna skrifa ég svona hægt.
Ég stefni í bíó í kvöld með Mörtu að sjá Jón Pál myndina, það
verður örugglega gaman.
Annars gengur mér ágætlega í skólanum, en er að kafna úr lærdómi
og allt of miklu að gera, er að útskrifast um jólin, svo það er
mikil vinna, auk þess er ég í kynningarnefnd, nýársnámskeiðsnefnd,
leikfélaginu Platitude og að vinna. Þetta er algert rugl. Ég er
samt ofur hress og alltaf til í partý 
Annars skemmti ég mér prýðis vel í afríku og ætla að reyna að
skella inn dagbókinni minni hérna einhvern tímann.
Á morgun eru ég og Marta að fara að baka..fyrirKSS FUND, á LAUGARDAGSKVÖLDUM KL. 20:30!
Allir að mæta! 
kv. Gulla
»
01.08.2006 23:14:14 / gulla
Ekki meira blogg í mánuð.. ég er að fara til AFRÍKU! vúhú, hlakka
til að hitta ykkur þegar ég kem heim og Guð blessi ykkur
kv. Gulla Afríkuferðalangur
»
25.06.2006 19:17:54 / gulla
Hæ elsku
krúttin mín, þá er loksins komið að því. Blogg frá Vindáshlíð.
Er annars einhver sem les þetta blogg?
Það er margt
skemmtilegt búið að gerast hér í hlíðinni og hver dagur er öðrum
betri. Það er reyndar farin að sjást smá þreyta á fólki, en það er
ekkert sem má ekki laga 
Í dag er ég búin
að vera hér í 3 vikur, með yndislegu starfsfólki og frábærum
stelpum. Ég byrjaði sem foringi, fór svo yfir í eldhússtúlku og
bakara og nú er ég brennóforingi.
Ekki á morgun,
heldur hinn er svo dvöl minni hér lokið í bili og ég skrepp heim í
viku og hef það gott.
Hvernig er samt
sumarið búið að vera hjá þér?
Mitt er búið að
vera prýðis fínt, það byrjaði reyndar ömurlega, með 2
rigningarvikum, en sólin seinustu daga sló það alveg úr huga mér.
Ég og Haukur skruppum á þingvelli í blíðunni og höfðum það kósý!
Það var ótrúlega indælt.
Við skoðuðum
Öxarárfoss og ýmislegt fleira. Þegar við komum heim fórum við upp á
þak að gera vinabönd og sóla okkur 
Ég er að setja inn
fleiri myndir á myndasíðuna mína ( www.picturetrail.com/gudlaug1987
) smátt og smátt og vonandi næ ég að vera búin að troða þessu inn í
lok sumar.
Það styttist óðum
í Afríku! Við förum 2. ágúst og þá verður heldur betur gaman

Hlakka til að
heyra í ykkur og Guð geymi ykkur!
»
24.05.2006 17:20:32 / gulla
Hæ, hæ, hæ!
Ég er nýkomin heim úr
sumarbústaðaferð, og þetta var sko ótrúlega mögnuð ferð! Ég var því
miður ekki með myndavél með mér, en vonandi fæ ég myndir hjá hinum

Ég, Haukur, Hildur, Elías,
Jóhanna, Ragnar, Anna Lilja, Kristjana og Maggaskelltum okkur í
þessa mögnuðu ferð og skemmtum okkur ótrúlega vel. Lára og Hilmar
kíktu líka í heimsókn og það var ótrúlega gaman allt saman Við
grilluðum banana, borðuðum, fórum í pottinn, borðuðum, horfðum á
sjónvarpið, borðuðum, spiluðum, borðuðum, vorum í play station og
já.. við borðuðum! 
Annars er allt mega gott að
frétta af mér.. allt að skýrast í kringum sumarið mitt og svona..
búin að skrifa undir starfssamning við Vindáshlíð og ég er til í
fjörið! 
Krung er eitthvað að bilast..
ég veit ekki enn hvort ég fari eða hvað.. mig langar það samt
ótrúlega.. 
Annars langar mig bara að
minna ykkur á hvað þið eruð æðisleg.. ég komst alveg að því í
ferðinni að vinir eru svo ótrúlega dýrmætir! Þið eruð bestu vinir í
heimi! 
Kv. Guðlaug
»
21.05.2006 17:23:47 / gulla
Hæ.
Mig langaði að minnast á það að ég gleymdi víst nokkrum í
fólkafærslunni minni og mér þykir það ótrúlega leitt! Elsku
krakkar, hér er um ykkur og fyrirgefið milljón sinnum!
Jóhanna María: frábær stelpa og alltaf ótrúlega kát, fær fólk til
að brosa í kringum sig og svarar spurningum sem manni bráðvantar
svar við trúarlega 
Jóhanna Stella: skemmtileg og mjög hress, alltaf gott að hanga með
henni í skólanum.
Já.. ég held að nú séu allir komnir.. sorry að ég gleymdi ykkur,
þið eruð samt æði!!
Það er búið að vera nóg að gera, systir mín að útskrifast og
Jóhanna og Dagný líka og það er voða gaman.. tilhamingju! Svo
jájá.. ég man ekki alveg hvað ég ætlaði að blogga um skoh..  en
það er örugglega nóg að segja. Ég er búin að vera að vinna alla
daga á snæland og er að vinna líka í vikunni og svo er sumó á
morgun! Ég hlakka sko ýýýkt mikið til  Það verður ótrúlega gaman,
það er alveg á hreinu 
Loksins er ég að fara á kss fund.. eftir 5 daga reyndar.. en það
eru svona.. 2 eða 3 vikur síðan ég fór seinast á fund.. það er
doldið mikið.. er ekki annars kss fundur? eða eru þeir búnir?
Jæja... ég hef nú ekki meira að segja í bili held ég.. en þið eruð
æði og hafið það gott á næstu dögum! Og já.. ég fékk 7 í efnafræði
en ekki 6
»
14.05.2006 21:47:42 / gulla
Blogg, blogg, blogg! Tilhvers er eiginlega þetta blogg? Komið þið
sæl og blessuð og mikið er gaman að rita ykkur smá frásögn hér! Ég
er hress að vanda, ný komin að ofan og til í tuskið. Ég var semsagt
í flugvél  Ég er ný komin heim frá Siglufirði, þar sem ég var í
heimsókn hjá bestu ömmu og afa í heimi, það var hreint út sagt
æðislegt! Ég og Haukur skelltum okkur saman og skemmtum okkur
stórvel  Amma og afi eru svo yndisleg, ég get varla lýst því. Við
slöppuðum vel af, skoðuðum Sigló, sumarbústaðinn, skíðasvæðið,
fótboltasvæðið, sjálfsbjörg og að ógleymdum öllum ættingjunum  Ég
mæli sko með Siglufirði! Prófin eru búin og það er glatt á hjalla,
þau gengu bara prýðisvel og ég náði öllu og mjöööööög sátt með það!
Viljið þið vita einkunnirnar mínar? Þær eru eftirfarandi:
Stærðfræði 403 : 8 Stærðfræði 313 : 9 Íslenska 403 : 6 Líffræði 203
: 7 Efnafræði 303 : 6 Eðlisfræði 203 : 8 Leikfimi 311 : 8 Enska 403
: 7 Skólasókn 061 : 10 Setti nú skólasóknina þarna bara uppá
útlitið.. en eruð þið ekki stollt af mér? Að fráreiknaðri skólasókn
er meðaleinkunn mín 7,3 sem ég er bara býsna sátt við, ef satt skal
segja  Krung, krung, krung.. það er að líða að Afríku, allt
gengur nú bara prýðisvel og búið er að festa ferðina á 2. ágúst,
þetta verður langt og skemmtilegt ferðalag og ég hlakka óstjórnlega
mikið til! Það skal satt segja.. En elsku fólkið mitt.. hvar eruð
þið? Það eru svo fáir sem commenta við bloggin mín þessa dagana.. 3
að meðaltali sem er nú ekki gott.. en það er fámennt en góðmennt..
 lítið er skárra en ekkert  Jæja já.. ég hef ekkert komist á
KSS fundi seinustu.. hvað? 2 fundi.. úff.. það var nú lærdómur og
utanbæjarferð. Ég er ekki frá því að stundum er það ég sjálf.
Stundum langar mig hreint ekki að mæta. Ýmiss konar vonbrigði og
leiðindi.. en lífið býður upp á svo margt meira.. svo mikla gleði!
Og vinur minn, hann Jesú, væri nú ekki sáttur við að ég myndi láta
eitthvað ómerkilegt fólk draga mig niður og reyna að hafa áhrif á
trú mína, óvitandi.. því Guð er svo miklu betra en mannfólkið! Guð
elskar MIG.. pælið í því? Sumum finnst þetta eflaust sjálfselskt..
en pælið í því.. að af öllu í heiminum.. elskar Guð MIG óendanlega
mikið, ég er það dýrmætasta sem hann á! Mér finnst það æðislegt og
Guð er svo sannarlega góður! Enda hef ég sjálf, inni í mér, tekið
þá ákvörðun að láta neikvæða gagngrýni þjóta um eyru mín sem vind
og ekki hlusta á það! Því ég veit betur! Jæja krakkar mínir, ég
minni ykkur á að kjósa mig sem forseta eftir 16 ár  X-Guðlaug
»
14.05.2006 21:47:40 / gulla
Blogg, blogg, blogg! Tilhvers er eiginlega þetta blogg? Komið þið
sæl og blessuð og mikið er gaman að rita ykkur smá frásögn hér! Ég
er hress að vanda, ný komin að ofan og til í tuskið. Ég var semsagt
í flugvél  Ég er ný komin heim frá Siglufirði, þar sem ég var í
heimsókn hjá bestu ömmu og afa í heimi, það var hreint út sagt
æðislegt! Ég og Haukur skelltum okkur saman og skemmtum okkur
stórvel  Amma og afi eru svo yndisleg, ég get varla lýst því. Við
slöppuðum vel af, skoðuðum Sigló, sumarbústaðinn, skíðasvæðið,
fótboltasvæðið, sjálfsbjörg og að ógleymdum öllum ættingjunum  Ég
mæli sko með Siglufirði! Prófin eru búin og það er glatt á hjalla,
þau gengu bara prýðisvel og ég náði öllu og mjöööööög sátt með það!
Viljið þið vita einkunnirnar mínar? Þær eru eftirfarandi:
Stærðfræði 403 : 8 Stærðfræði 313 : 9 Íslenska 403 : 6 Líffræði 203
: 7 Efnafræði 303 : 6 Eðlisfræði 203 : 8 Leikfimi 311 : 8 Enska 403
: 7 Skólasókn 061 : 10 Setti nú skólasóknina þarna bara uppá
útlitið.. en eruð þið ekki stollt af mér? Að fráreiknaðri skólasókn
er meðaleinkunn mín 7,3 sem ég er bara býsna sátt við, ef satt skal
segja  Krung, krung, krung.. það er að líða að Afríku, allt
gengur nú bara prýðisvel og búið er að festa ferðina á 2. ágúst,
þetta verður langt og skemmtilegt ferðalag og ég hlakka óstjórnlega
mikið til! Það skal satt segja.. En elsku fólkið mitt.. hvar eruð
þið? Það eru svo fáir sem commenta við bloggin mín þessa dagana.. 3
að meðaltali sem er nú ekki gott.. en það er fámennt en góðmennt..
 lítið er skárra en ekkert  Jæja já.. ég hef ekkert komist á
KSS fundi seinustu.. hvað? 2 fundi.. úff.. það var nú lærdómur og
utanbæjarferð. Ég er ekki frá því að stundum er það ég sjálf.
Stundum langar mig hreint ekki að mæta. Ýmiss konar vonbrigði og
leiðindi.. en lífið býður upp á svo margt meira.. svo mikla gleði!
Og vinur minn, hann Jesú, væri nú ekki sáttur við að ég myndi láta
eitthvað ómerkilegt fólk draga mig niður og reyna að hafa áhrif á
trú mína, óvitandi.. því Guð er svo miklu betra en mannfólkið! Guð
elskar MIG.. pælið í því? Sumum finnst þetta eflaust sjálfselskt..
en pælið í því.. að af öllu í heiminum.. elskar Guð MIG óendanlega
mikið, ég er það dýrmætasta sem hann á! Mér finnst það æðislegt og
Guð er svo sannarlega góður! Enda hef ég sjálf, inni í mér, tekið
þá ákvörðun að láta neikvæða gagngrýni þjóta um eyru mín sem vind
og ekki hlusta á það! Því ég veit betur! Jæja krakkar mínir, ég
minni ykkur á að kjósa mig sem forseta eftir 16 ár  X-Guðlaug
»
10.05.2006 17:39:12 / gulla
Hér fyrir neðan er smá listi yfir þá sem mér finnst skipta máli í
mínu lífi og það sem þau gera gott, fyrir mig : Haukur Már:
Kærastinn minn, er alltaf hjá mér, huggar mig þegar mér líður illa,
hlær með mér þegar mér líður vel og er alltaf til staðar fyrir mig.
Valey: Systir mín, alltaf til staðar fyrir mig og hjálpar mér með
það sem vinir mínir geta ekki hjálpað mér með. Lærir með mér og
eyðir tíma með mér þegar ég er ein. Marta: Vinkona mín, alltaf til
í að gera eitthvað og hressir mig alltaf við með sínum yndislega
húmor. Ég get talað við hana um hvað sem er, henni finnst ekkert of
skrítið. Perla: Vinkona mín, við förum alltaf saman í hress og
hlaupum af okkur spikið og henni tekst alltaf að hressa mig við,
með sínu yndislega brosi og hún fær mig til að líða vel með sjálfa
mig og hvernig ég er. Kristjana: Vinkona mín, alltaf til í spjall
langt fram á nótt og ótrúlega góður hlustandi, hlustar á mig sama
hvað ég er að væla um. Ótrúlega þægilegt að vera í kringum hana og
hlægja með henni. Hildur Björg: Vinkona mín, yndisleg stelpa og svo
góð alltaf. Segir mér alltaf hvað ég lít vel út, þó ég líti í raun
út eins og sorptunna! Hjálpar mér ef eitthvað bjátart á og sinnir
mér eins og hún getur, þrátt fyrir að vera mjög annasöm. Freyja:
Systir mín, hressir mann alltaf við og er alltaf til í bæjarferðir
og hangs. Ragnar: Vinur minn, ótrúlega hress og hressir mann alltaf
við með fullt af rugli. Sigrún Ýr: Vinkona mín, þó ég hafi ekki
hitt hana lengi er alltaf fjör í henni og hún er ótrúlega kát og
kætir mig alltaf. Aron: Vinur minn, hress strákur og ótrúlega
indæll, lætur mér líða vel og hann fær mig ekki sjaldan til að
brosa að því sem hann gerir. Elías: Vinur minn, indælis strákur og
ótrúlega fróður, gott að umgangast hann og hann fær fólk til að
brosa alveg helling. Anna Lilja: Vinkona mín, ótrúlega yndisleg og
glöð alltaf, ég verð bara glöð af því að umgangast hana, því hún er
alltaf svo glöð. Hjálpar mér mikið við veraldlega hluti eins og
geisladiskakaup. Þóra Jenný: vinkona mín, indæl og fær mig alltaf
til að hlægja helling og hefur svipaðar skoðanir og ég. kv. Gulli
»
Síður: 1 2 3 ... 8
|
|